Hálfnuð! :)

jæja held það sé komin tími á smá blogg, aðeins of langt síðan 🙂 en í tilefni þess að erfiðustu prófin mín eru búin, vúhú, er tilvalið að tjá mig aðeins 😉

Ég var sem sagt að koma úr handlæknisfræði prófi áðan og má til gamans geta að ég skemmti mér bara konunglega í prófinu, nú þar sem kennarinn ákvað að koma með ritgerðar spurningu um efni sem hann sagði að væri ekki ritgerðarspurningar efni núhh þá bullaði ég bara og gerði tvær ofboðslega fínar skýringarmyndir með sem ég efast ekki um að verði hlegið að vegna ótrúlegrar teiknisnilli minnar!! 🙂 Einnig hló ég mikið þegar ég sá einn af fimm möguleikum sem hægt var að velja úr í einni krossa spurningunni en hann var svona: ef þú kemur að manni í losti út á landi….

a) þá átt þú að hringja á lækni í næsta bæ til að vita hvað þú átt að gera og ef sjúklingi hrakar á meðan þú ert í símanum þá veistu allavega af starfandi presti í næsta nágrenninu sem gæti komið að gagni!!!

mjög góður möguleiki! og náttla krossaði ég við hann 😉 einmitt hehe

Það hefur nú ýmislegt steikt gerst hér á hlöðunni yfir prófin! sem er nú kannski ekki einu sinni frásögufærandi 😉 en þess má þó geta að Erna gladdi okkur með eftirminnilegum klósettferðum sínum 😉 haha! ásamt fína hreina hárinu hennar Báru! 😉 og við Berglindarnar stöndum alltaf fyrir okkar 😉  en hlöðugengið í ár er sem sagt ég, Berglind, Bára og Erna. En það eru einmitt leynifundir hlöðugengisins á hverjum degi frá klukkan 8:15-22:00.

nú ehhhh

en ehhhh

vó alveg tóm svo ég segi bara bæ í bili og kem vonandi með meira slúður á næstunni 😉

sæl að sinni og gangi ykkur vel í prófum þið sem eruð í prófum 🙂

Published in: on maí 7, 2007 at 5:31 e.h.  Comments (2)  

The URI to TrackBack this entry is: https://belelind.wordpress.com/2007/05/07/halfnu%c3%b0/trackback/

RSS feed for comments on this post.

2 athugasemdirFærðu inn athugasemd

  1. Hey leynifundur krefst þess að þú kjaftir ekki frá því að það sé fundur 😛 rekin úr hlöðugenginu 😀 steikingarfýla :O)

  2. usss uss uss leynifélagar eiga ekki að segja svona ljótt! þú geymir þetta bara út af fyrir þig fröken súrgúrka leynifélagi! 😉
    kv leynifélagi súpereyrnatappi!


Færðu inn athugasemd