drasl…

og ég hélt ég fengi smá frí….

en nei það bara hrúgast verkefni á mann endalaust vúhú!! :)

uuu það er nú ekki mikið að frétta af mér þessa dagana er bara búin að vera að læra, og er bara að bíða eftir að komast í IKEA! Það er búið að vera svo mikið að gera að við erum ekki einu sinni búin að koma okkur almennilega fyrir á Eggertsgötunni.

Á sunnudags morguninn hitti ég einn mjög svo fagran og skeggjaðan og ég er er sko endalaust skotin í honum!!! :) endilega kíkjið á töffarann: robbi.jpg

:)

ég semsagt skellti mér á voffa sýningu með Fjólu og sá Ástu Maríu sýna Robba (sæta skeggjaða gerpið á myndinni) hann stóð sig rosa vel

Published in: on október 8, 2007 at 10:38 am  Ummæli (2)  

Kósí :)

diereisederpinguine_12.jpg

er eitthvað sætara en þessi litlu gimpi!!!! nibb…

Published in: on október 1, 2007 at 4:48 pm  Ummæli (1)  

Verknám

jæja þá er ég bara hálfnuð með verknámið fjúff! ég er á 11E krabbameinsdeild og það er ótrúlega fínt. Það er frábær starfsandi á deildinni og vel tekið á móti manni :) en það er kreisí að gera nóg af verkefnum og fyrirlestrum og alles. En svo eftir bara 2 vikur þá er ég búin í verknámi og október bara rétt að byrja! jeee

vá hvað þessi helgi var yndisleg! þetta var fyrsta fríhelgin mín í mánuð! Það var ekki miklu komið í verk sem er ekki nógu gott miðað við öll verkefnin sem ég er að drukna í ;) Ég var reyndar allan laugardaginn upp í nýja rúminu mínu með nýja borðið mitt ( sem er á hjólum) yfir rúminu mínu og var að skrifa upp viðtal sem ég tók á föstudeginum! :) BARA næs að geta setið upp í rúmi og með tölvuna á borðinu fyrir framan sig.

núhh til að útskýra betur fyrir ykkur hvernig fallega borðið mitt virkar þá gerði ég mjög svo fallega útskýringarmynd með en til að sjá hana þurfið þið að fara á þennan góða link hér fyrir neðan endilega kíkjið þið á :)

http://farm2.static.flickr.com/1079/1431612197_da07f19e75.jpg?v=0

sæl að sinni

Published in: on september 24, 2007 at 9:56 am  Ummæli (6)  

Brúðkaup sumarsins

hér eru sætu hjónakorn sumarsins(þið getið íta á myndirnar og séð þær stærri):

picture-035.jpg

Jón Þór og Guðrún mágkona :)
picture-042.jpg

Hjördís Rós og Einar Helgi

nokkrir gestir ;)

picture-056.jpg

picture-045.jpg

picture-046.jpg

picture-065.jpg

picture-069.jpg

picture-044.jpg

Published in: on september 24, 2007 at 8:44 am  Rita ummæli  

Gæsir sumarsins

ég tók þátt í tveim gæsunum í sumar sem voru báðar alveg hrein snilld! ég ætla bara að leifa myndunum að tala :)

picture-0371.jpg

Guðrún í góðum fíling að fara á jet ski!!

picture-005.jpg

Hjördís mótórhjóla gella á leið í einkaflug :)

Published in: on september 17, 2007 at 5:18 pm  Rita ummæli  

vöknuð til lífsins!

eða þar að segja ég er byrjuð í skólanum! og þá er sko nógur tími til að blogga og gera allt annað en að læra ;) úfff maður er svo samviskusamur ;)

Jæja þá er maður ný komin frá 3 vikna Orlando ferð ummmm það var bara yndælt. Það var reyndar mjög svo heitt eiginlega alltaf 40 stiga hiti svo það var bara sólbað í tvo tíma á dag og svo BÚÐIR!!! Jeeee… ég sem sagt keypti yfir mig! sem var allt í gúddí því að dollarinn var í lágmarki :) Núh það var farið í 5 garða. Fyrst fórum við í Busch gardens sem var æði, þetta er svona dýragarður/rússíbanagarður = úlala. Við fórum sem sagt í fullt af mjög svo góðum rússíbönum meðal annars einn sem fór beint niður. En þar að auki fórum við í safarí og fengum að gefa gírafa að borða og klappa honum ( og ég náttla fríkaði af gleði :) ). Við fórum líka í MGM studios, Animal kingdom og svo tvo vatnagarða, wet and wild og blizzard bech. Í heild var þessi ferð algjör draumur!!

picture-182.jpg

þarna erum við jónó að versla í samsclub!! vúhú það er risastórt vöruhús með öllu sem þér dettur í hug og það kostar ekki neitt!!

picture-207.jpg

Brún og sæt í downtown disney :)

Svo erum við Jónó flutt inn í íbúð á stúdentagörðunum! ótrúlega gaman, við erum reyndar ekki alveg búin að koma okkur fyrir held það eigi eftir að taka doltið langan tíma, það er svo brjálað að gera núna.

Published in: on september 17, 2007 at 11:00 am  Rita ummæli  

Málefnaleg…

Jæja ríkisstjórnin ekki fallin! úff þetta voru nú heldur betur spennandi kosningar! ég var nú samt ekki duglega að horfa þar sem ég fór að sofa klukkan hálf 12 hehe út af því að ég þurfti að vakna kl sjö í morgun til að fara að læra! en ég gat sem sagt fylgst með fyrstu og síðustu tölum :) og það var nú nógu spennandi fyrir mig ;)

en þá er það bara spurningin hverjir mynda meiri hluta? D og V? eða D og S? eða??? mér finnst nú frekar líklegt að það verði D og S.

Eitt skitið próf eftir ég var ekki að nenna að fara heim í gærkvöldi til að fara að sofa til að fara að læra í ALLAN dag!! ohh og svo hálfan daginn á morgun þar sem ég er ekki í prófinu fyrr en eftir hádegi á morgun! en þetta er allt saman að taka enda…. og þá verður massa stuð

ég byrja stuðið með því að fara nánast beint eftir prófið upp í sumarbústað með hjúkkunum :) og þar verður sko mikil gleði! ;)

svo næstu daga verð ég að dunda mér að gera fínt í fínu stúdentaíbúðinni sem við fengum einmitt í miðjum prófum ( við erum reyndar ekki að fara að flytja inn fyrr en í ágúst sökum mikillar fjarveru í sumar ;) )

núhh og svo fer ég í klippingu á fimmtudaginn og verð alveg svakalega lekker eftir það

og svo er aðal málið á sunnudaginn nákvæmlega eftir viku förum ég og Nonni til Lansaród!!!! jeeeee! það verður feitt afslappelsi ahhhh ;) pant fá mikinn lit! Eitt stykki brúnka takk!

duck.jpg jeeeeee
Þá er það bara að halda áfram að læra og hlakka til frábæru dagskrár minnar næstu daga ;)

verið þið sæl að sinni og gangi ykkur allt í haginn :)

kv Bókhlöðugimpið hehe.jpg

Published in: on maí 13, 2007 at 11:50 am  Ummæli (6)  

Hálfnuð! :)

jæja held það sé komin tími á smá blogg, aðeins of langt síðan :) en í tilefni þess að erfiðustu prófin mín eru búin, vúhú, er tilvalið að tjá mig aðeins ;)

Ég var sem sagt að koma úr handlæknisfræði prófi áðan og má til gamans geta að ég skemmti mér bara konunglega í prófinu, nú þar sem kennarinn ákvað að koma með ritgerðar spurningu um efni sem hann sagði að væri ekki ritgerðarspurningar efni núhh þá bullaði ég bara og gerði tvær ofboðslega fínar skýringarmyndir með sem ég efast ekki um að verði hlegið að vegna ótrúlegrar teiknisnilli minnar!! :) Einnig hló ég mikið þegar ég sá einn af fimm möguleikum sem hægt var að velja úr í einni krossa spurningunni en hann var svona: ef þú kemur að manni í losti út á landi….

a) þá átt þú að hringja á lækni í næsta bæ til að vita hvað þú átt að gera og ef sjúklingi hrakar á meðan þú ert í símanum þá veistu allavega af starfandi presti í næsta nágrenninu sem gæti komið að gagni!!!

mjög góður möguleiki! og náttla krossaði ég við hann ;) einmitt hehe

Það hefur nú ýmislegt steikt gerst hér á hlöðunni yfir prófin! sem er nú kannski ekki einu sinni frásögufærandi ;) en þess má þó geta að Erna gladdi okkur með eftirminnilegum klósettferðum sínum ;) haha! ásamt fína hreina hárinu hennar Báru! ;) og við Berglindarnar stöndum alltaf fyrir okkar ;)   en hlöðugengið í ár er sem sagt ég, Berglind, Bára og Erna. En það eru einmitt leynifundir hlöðugengisins á hverjum degi frá klukkan 8:15-22:00.

nú ehhhh

en ehhhh

vó alveg tóm svo ég segi bara bæ í bili og kem vonandi með meira slúður á næstunni ;)

sæl að sinni og gangi ykkur vel í prófum þið sem eruð í prófum :)

Published in: on maí 7, 2007 at 5:31 pm  Ummæli (2)  

úffídúffí

 vá þá er maður á fullu í verknámi á háls, nef og eyrna og bæklunar skurðdeild eða A5 í Fossvoginum. Ég er búin að vera í verknámi alla páskana, ég var einmitt að koma af kvöldvakt núna og er að fara á tvöfalda vakt á morgun og verð þá frá 8 um morguninn til hálf 12 um kveldið!! úfff maður verður eitthvað skrautlegur eftir það :)

annar er ekki mikið að frétta af mér, ég var með skvísuhitting  um daginn sem var náttla bara snilld og við skemmtum okkur konunglega þó að sumir hafi verið orðnir soldið þreyttir í lokin ;) hehe

Svo fór ég í afmæli til hennar Kötu minnar í nýju fínu íbúðina hennar í 101! jeee órtúlega flott og til hamingju aftur litla gimpið mitt ;)

en jæja þá er bara komin tími fyrir mig að fara að lúlla fyrir kreisí vaktina mína á morgun en sæl að sinni :)

gl00891.jpg
útsígútsí… þetta eru klárlega páska andarungarnir í ár ohh svo gulir og sætir ;)

Published in: on apríl 9, 2007 at 10:58 pm  Ummæli (3)  

dúdúrú

úfff ég verð að viðurkenna að ég er búin að vera heldur betur léleg að blogga undanfarið huhum… og ég er ekki einu sinni búin að setja inn myndir af árshátíðinni, ég lofa þær fara að koma ;)

en allavega það hefur ýmislegt drifið á daga mína undanfarið. Ég fór í verknám eina viku inn á skurðstofuna í fossvoginum sem var heldur betur skemmtilegt! Ég fékk að sjá ótrúlega áhugaverðar aðgerðir og fékk að gera ýmislegt eins og að setja upp nál, barka þræða og fékk að skrúbba mig inn og hjálpa til í aðgerð jeeee það var snilld!!!

Allan  laugardaginn  var ég að hjálpa  Jóns og Guðrúnu að flytja. Þau eru núna flutt í glænýja blokk í Sóltúni 16. Þetta er með flottari íbúðum sem ég hef séð, allavega hún er æði með tveim svölum og alles ;)

núna er ég bara hérna á hlöðunni eins og mér einni er lagið og er að reyna að fara að læra :)   svo ég ætla bara að láta þetta duga í bili :)

hér kemur ein skvísu mynd af árshátíðinni en hinar koma bráðum inn á myndasíðuna :)

picture-056.JPG

Published in: on mars 26, 2007 at 11:36 am  Ummæli (7)  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.