Bara búið!!

jæja hér sit ég í síðustu kennslustund þessarar annar! sem er ótrúlegt þar sem ég mætti í skólan 5 sept og er þar af leiðandi bara búin að vera í skólanum í 3 vikur! úff og svo er það bara verknámið í 2 mánuði!! sem er mjög gaman fyrir utan hvað það er rosalega mikið að gera í þessum blessuðu verknámi og maður nær eiginlega ekki að njóta þess að vera í verknámi. Ég er ótrúlega spennt að fara í barnahjúkrunar verknámið þar sem ég er á vökudeildinni! vúhú hlakka mikið til að sjá öll sætu börnin og fá að vinna með þeim :) ég fæ líklega mest að skipta á þeim og gefa þeim að drekka en það er æði :)

jæja ætla ekki að tjá mig meira í bili vonandi á ég eftir að blogga meira gæti orðið erfitt þar sem brjálað er að gera hjá mér en það er alltaf gott að nýta tímann á hlöðunni í eitthvað annað en að læra ;)

ákvað að bæta inn sætu gerpa myndinni af okkur brúðhjónunum ;)

Published in:  on september 26, 2008 at 10:01 am Ummæli (4)

Gift kona!

jæja þá er maður bara orðin gift kona! sem er náttla bara snilld :)   og svo eftir 5 october þá verður maður bara orðin prestsfrú! hahahah brillíant, þar sem Jónó (eiginmaður minn) hehe er að fara að vígjast 5. okt og verða yngsti prestur landsins :) úff maður er bara orðin ótrúlega fullorðin ;)

Þarna erum við sætu hjónakornin :)

Published in:  on september 24, 2008 at 10:40 am Rita ummæli