Loksins

Loksins hef ég ákveðið að láta heyra pínu í mér ;)

það er ýmislegt að frétta af mér aldrei þessu vant ;) við Jónó vorum Loskins að ákveða endanlega sal og kirkju! Vúhú!! og er er ótrúlega endalaust glöð! það er svo gott þegar þetta er ákveðið, þá eigum við bara eftir að ákveða boðskort, lög, ljósmyndara, píanóleikara, blómaskreytingar, skreytingar í salinn, matseðil, og fleira og fleira og fleira :) sem er náttla bara skemmtilegt. En mig langar að benda ykkur á eitt…. það eru bara 5 mánuðir í brúðkauðið!!!! jeee, það er ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða :)

booger_20baby_small.jpg
Nú sit ég hérna heima með hor í nebba og hálsbólgu og rembist við að gera verkefni fyrir morgundaginn, geggjað stuð eins og ávallt, en ég er að hugsa um að hoppa bara upp í rúm og horfa á einn þátt og sofna svo ahhh

jæja þetta var yndælt, ég ætla að reyna að láta ekki líða svona langt þar til næst :)

kv Berglindin

Published in: on febrúar 20, 2008 at 8:47 pm Ummæli (7)