Bara eitt próf eftir!!!

fjúff það er loksins að koma að þessu prófin eru alveg að verða búi!! vúhú!!! :) ég er reyndar ekki alveg að nenna að læra meira svo ég ákvað bara að blogga, mjög sniðugt þar sem ég er að frumlesa allt fyrir þetta blessaða próf mitt á fimmtudaginn en það verður bara að reddast ;)

Hún Berglind Ó nafna mín á afmæli í dag og er hún orðin eldgömul eins og ég! eða 23 ára í dag vúhú til hamingju krúsla! (hún situr reyndar í prófi akkúrat núna svo það er massa stuð hjá henni á afmælisdaginn).

Bára átti einnig afmæli í gær en hún er ekki jafn gömul og við Berglindarnar hún er svo mikið unglamb þessi elska 21 árs :) Núh það var haldin rosalega afmælisveislu hér á hlöðunni með hljómsveit og öllu. massa stuð ;) hehe

Hér kemur mynd af fallegu afmælisbörnunum:

picture-013.jpg

picture-106.jpg

ég hef ekki mikið meira sniðugt að segja í dag en bara gangi ykkur vel sætu gimpin mín þið sem eruð í prófum :) (gimpi=eitthvað rosa krúsulegt, bara útskýra fyrir þeim sem þekkja mig ekki í gegn ;) )

monkey-nerd.jpg

kv Hlöðudýrið

Published in:  on desember 18, 2007 at 2:31 pm Ummæli (2)

Gæsir

Hafið þið einhverntíman pælt í því hvað gæsir eru snilldar fyrirbæri!! haha ég sit hér á hlöðunni og horfi út um gluggan á heilan hóp af gæsun sem eru að svamla fyrir utan! þær eru svo stórar og feitar að þær ná niður í vatninu þannig að þær eru ekkert að synda þær eru bara að labba í vatninu hah! svo er yndælt að fylgjast með þeim labba því þær eru innskeyfar og hreyfa bossan svo svakalega mikið þegar þær labba hahahah og ekki nóg með það þá eru þær á beit hér fyrir utan!

hah yndælt þetta er skemmtun mín þessa dagana :)

174.jpg

og svona smá í lokin þá held ég að þetta skilti mindi virka vel á hringbrautinni, ég hef allavega lent nokkuð oft í því að þurfa að stoppa til að leifa gæsunum að labba yfir hahhh þær eru svo fyndnar.

goose_xing_thumb_640.jpg

Published in:  on desember 12, 2007 at 5:31 pm Ummæli (2)

Vil ekki komast í kast við lögin!!

núhhh víst það er bannað að hætta að blogga í prófum (samkvæmt Röggu) OG ég vil alls ekki komast í kast við lögin ætla ég hér með að blogga! :) (þetta þýðir að samkvæmt kenningu Kohlbergs um siðferðisþroska er ég á 4 stigi = viðhalda félagskerfi og valdatengslum, takk fyrir)

Ég var í öðru prófinu mínu í gær og á ég þá eftir heil þrjú próf vúhú!!! ég var semsat í prófi í vöxt og þroska í gær, sem ég vitna í hér að ofan um siðferðisþroska minn :) Í stað þess að fara að læra eins og kreisí þá fór ég bara heima á afló og fór að baka jólakökur og hlusta á jólalög. Það var svo yndælt því nú get ég étið afrakstur gærkveldsins ;) hehe Það gekk svolítið brösulega þar sem ég átti að hnoða degið, allt í góðu með það, nema að það var endalaust af eggjum, smjöri og SÍRÓPI úfff og frekar lítið af þurrefnum svo deigið fór allt á hendurnar á mér í staðin fyrir að fara saman í klump, en það reddaðist á endanum og bökuðum ég og mamma þessar dýrindis engiferkökur ummmm….

nú sit ég hér á hlöðunni eins og ávallt að læra undir próf sem er á fimmtudaginn og það gengur svona aldeilis vel er á 2 kafla af 13 vúhú stemmari! ;) en ætla að hætta núna

gangi ykkur vel sem eruð í prófum

molly2222.jpg

Published in:  on desember 11, 2007 at 1:59 pm Ummæli (2)