Jæja ríkisstjórnin ekki fallin! úff þetta voru nú heldur betur spennandi kosningar! ég var nú samt ekki duglega að horfa þar sem ég fór að sofa klukkan hálf 12 hehe út af því að ég þurfti að vakna kl sjö í morgun til að fara að læra! en ég gat sem sagt fylgst með fyrstu og síðustu tölum
og það var nú nógu spennandi fyrir mig
en þá er það bara spurningin hverjir mynda meiri hluta? D og V? eða D og S? eða??? mér finnst nú frekar líklegt að það verði D og S.
Eitt skitið próf eftir ég var ekki að nenna að fara heim í gærkvöldi til að fara að sofa til að fara að læra í ALLAN dag!! ohh og svo hálfan daginn á morgun þar sem ég er ekki í prófinu fyrr en eftir hádegi á morgun! en þetta er allt saman að taka enda…. og þá verður massa stuð
ég byrja stuðið með því að fara nánast beint eftir prófið upp í sumarbústað með hjúkkunum
og þar verður sko mikil gleði!
svo næstu daga verð ég að dunda mér að gera fínt í fínu stúdentaíbúðinni sem við fengum einmitt í miðjum prófum ( við erum reyndar ekki að fara að flytja inn fyrr en í ágúst sökum mikillar fjarveru í sumar
)
núhh og svo fer ég í klippingu á fimmtudaginn og verð alveg svakalega lekker eftir það
og svo er aðal málið á sunnudaginn nákvæmlega eftir viku förum ég og Nonni til Lansaród!!!! jeeeee! það verður feitt afslappelsi ahhhh
pant fá mikinn lit! Eitt stykki brúnka takk!
jeeeeee
Þá er það bara að halda áfram að læra og hlakka til frábæru dagskrár minnar næstu daga
verið þið sæl að sinni og gangi ykkur allt í haginn