úffídúffí

 vá þá er maður á fullu í verknámi á háls, nef og eyrna og bæklunar skurðdeild eða A5 í Fossvoginum. Ég er búin að vera í verknámi alla páskana, ég var einmitt að koma af kvöldvakt núna og er að fara á tvöfalda vakt á morgun og verð þá frá 8 um morguninn til hálf 12 um kveldið!! úfff maður verður eitthvað skrautlegur eftir það :)

annar er ekki mikið að frétta af mér, ég var með skvísuhitting  um daginn sem var náttla bara snilld og við skemmtum okkur konunglega þó að sumir hafi verið orðnir soldið þreyttir í lokin ;) hehe

Svo fór ég í afmæli til hennar Kötu minnar í nýju fínu íbúðina hennar í 101! jeee órtúlega flott og til hamingju aftur litla gimpið mitt ;)

en jæja þá er bara komin tími fyrir mig að fara að lúlla fyrir kreisí vaktina mína á morgun en sæl að sinni :)

gl00891.jpg
útsígútsí… þetta eru klárlega páska andarungarnir í ár ohh svo gulir og sætir ;)

Published in: on apríl 9, 2007 at 10:58 pm Ummæli (3)