Galito :)

Hérna sit ég í stofunni og reyni að gera eitthvað af þessum endalausu verkefnum sem við eigum að gera í þessu verknámsdrasli! arg! en þetta er samt voða kósí
Í gær ákváðum við vesturbæjar gellurnar að fara út að borða. Við höfðum pantað pizzu kvöldið áður svo okkur langaði ekki mikið í pizzu en skönnuðum hvaða aðra staði væri hægt að fara á… humhumm… úrvalið var: Hrói höttur eða Galito
svo við fórum á Galito. Þetta er ekkert smá rjómó staður og ótrúlega góður matur við fengum okkur kjúklinga salat og það var æði!! þetta var ekki salat með kjúkling, heldur kjúklingur með salat
Eftir matinn ákváðum við að vera eins og sannir skagamenn og fara á “RÚNTINN” hahahahaha ég hef aldrei vitað jafn fyndið! Rúnturinn er semsagt ein (mjög svo stutt) gata sem menn fara fram og til baka, fram og til baka í nokkra klukkutíma!! haha við vesturbæjargengið dóum eftir 1 og hálfan hring og fórum bara að rúnta út um allt! jeeee!
Ég kem heim á morgun til að vera heima um helgina og líklega fyrri partinn af næstu viku vúhú
Vísindaferðir…
myndir frá vísindaferðum síðustu tvo föstudaga
fyrri vísindaferðin var í lyfjafyrirtækið Vistor og þaðan var farið á oktoberfest. Þar sem ég set ekkert nema afskærmdar myndir hérna af mér ákvað ég að setja 2 rosa sætar myndir af okkur gellunum á leið í vistor
En síðasta föstudag fóru hjúkkurnar til Keflavíkur á sjúkrahúsið þar og þar var stemmingin aðeins flippaðri. Á leiðinni sátum ég, Anna Guðný og Erna saman og tókum mjög svo fallegar myndir af okkur alla leiðina til baka
sveita stemmingin! :)
jæja þá verður maður að sýna hvernig stemmingin var í síðustu viku í sveitasælunni og hún veður ekki í ljóðrænu formi í þetta skiptið
ég og Ingibjörg vorum saman í herbergi og var gífurleg stemming þar eftir kvöldvaktina! hehe ætla ekki að segja neitt meira ég held að myndirnar sýni alveg hvernig stemmingin var
vasa vara?
sjáið þið hræðsluna! alveg órtúlegt hvað ég get orðið afmynduð í framan
svefngalsinn alveg að fara með okkur þarna í lokin
þá eru ekki meira að frétta af skaganum en meira verður sagt síðar
ojojojoj…
þetta er rosalegt!
ég er að drukkna í verkefnum í þessu verknámi úfff!
við þurfum að gera 1 verkefni á dag og skila í lok hverrar viku svo er
eitt 50% verkefni sem við eigum að skila 4 dögum eftir að verknámið
er búið svo við þurfum að vera að gera það með hinum minni verkefnunum
og þetta er bara í verknáminu eða almennri hjúkrun svo er eitt annað
50% verkefni í viðbót og svo að reyna að byrja að læra undir próf!
það eru bara 6 vikur eftir af skólanum SÆLL!!
nú þarf maður að koma sér í lærdómsgírinn!
Fyrir utan þessa verkefna geðveiki þá er Skaginn bara
ótrúlega fínn! rosa stórt og fínt herbergi og sameiginlegt eldhús
og stofa með imba og svona. Svo fáum við frían mat inn á sjúkrahúsinu!
þetta er bara eins og hið fínasta hótel
Við Ingibjörg erum á lyflækningardeild
það er svona allt múlígt deild og það er bara mjög góður mórall þarna
allir þekkja alla mórall mjög fyndið haha
En við Bogga erum allavega
alveg hreint voða ánægðar með þetta allt saman
bless í bili sætu gimpin mín!
Sveitasælan!
jæja þá er komið að því að flytja í sveitina!
Ég og Bogga förum á morgun upp í sveitasæluna, það verður öruglega ótrúelga fínt
það er samt smá stress þar sem við þurfum að skila verkefni eftir hvern einasta dag!
Við verðum í læknabústaðnum og fáum sér herbergi en svo er sameiginlegt
eldhús og stofa, sem verður öruglega mjög kósí
Bogga að mjólka
jæja verið þið sæla að sinni ég læt heyra meira frá mér þegar ég kem aftur frá sveita sælunni
Dugnaður!
ég fór í gær og keypti mér svona aldeilis lekkert prjóna blað!
Nú er bara að reyna að vera myndalegur og byrja að prjóna vúhú!
ég ætla sem sagt að reyna að prjóna á mig peysu! ji minn það verður vel skrautlegt!
ég veit samt ekki hversu mikinn tíma ég hef til að byrja á þessu en það er alltaf gott að hafa
einhverja handavinnu. Í þessu blaði er margt skemmtilegt en mér fannst þó ein peysa mest
áhugaverð af öllum, það var lopapeysa á HEST! úfff ég dó úr hlátri haha jamm allt er nú til!
ég fann ekki myndina af hestinum í fallegu lopapeysunni en ég fann þessa:
útsígútsí
kreisí!
það er allt að verða kreisí í hjúkkunni núna!
það er verið að demba á okkur endalaust af verkefnum
og við höfum fáránlega lítinn tíma til að gera þau!
og ég er að fara í verknám á Akranes sem gefur mér ennþá minni
tíma til að gera þau! fyrir utan það að ég er nú ekki búin að vera
sú duglegasta að lesa! obbosí!
og svo þar að auki ætla ég bara að skella mér til útlanda
þegar það er mest að gera, ROSA sniðugt!
er einmitt að fara þar næstu helgi
til Noregs duduru…..
jæja verð að fara að læra humm…













