jæja hér sit ég í síðustu kennslustund þessarar annar! sem er ótrúlegt þar sem ég mætti í skólan 5 sept og er þar af leiðandi bara búin að vera í skólanum í 3 vikur! úff og svo er það bara verknámið í 2 mánuði!! sem er mjög gaman fyrir utan hvað það er rosalega mikið að gera í þessum blessuðu verknámi og maður nær eiginlega ekki að njóta þess að vera í verknámi. Ég er ótrúlega spennt að fara í barnahjúkrunar verknámið þar sem ég er á vökudeildinni! vúhú hlakka mikið til að sjá öll sætu börnin og fá að vinna með þeim
ég fæ líklega mest að skipta á þeim og gefa þeim að drekka en það er æði
jæja ætla ekki að tjá mig meira í bili vonandi á ég eftir að blogga meira gæti orðið erfitt þar sem brjálað er að gera hjá mér en það er alltaf gott að nýta tímann á hlöðunni í eitthvað annað en að læra
ákvað að bæta inn sætu gerpa myndinni af okkur brúðhjónunum










